|
|
29.12.2007 20:16:59 / louisaoglarus
Já, þessi jól voru jafn fljót að fara eins og að koma. Við erum búin að hafa það alveg æðislega gott. Sölvi, tengdapabbi og Daníel komu til okkar laugardaginn 22. des og við vorum að koma heim núna, þar sem við vorum að skutla þeim til Billund og þeir voru að fara aftur heim. Við vorum náttúrlega með æðislega góðan kalkún, 24. des ásamt tilheyrandi meðlæti....mmmm. Svo var auðvitað dansað í kringum jólatréð eftir að við vorum búin að borða ris´alamand, og strákunum fannst nú lúmst gaman af því, þó svo að ég var ekki viss um að Daníel mundi taka þátt í því, hehehehehe.... Ég fékk flotta og góða Nike skó frá Lárusi , sem ég er auðvitað ótrúlega ánægð með, og annars fékk ég/við fullt af góðum og flottum gjöfum. Dagana á eftir var svo bara slappað af, borðað, farið í göngutúra og fleira. Á fimmtudaginn fórum við svo til Aarhus í bæinn þar, og þar var aðeins verslað. Daginn eftir fórum við til Gammel Ry á antiksölu, þar sem Sölvi verslaði gamlan grammafón, hehehe, það var eitt af því sem hann ætlaði að gera í þessari ferð. Þar á eftir var svo aðeins farið niður í bæ hérna í Randers. Það var alveg æðislegt að hafa Sölva og Daníel hérna hjá okkur yfir jólin, ótrúlegt bara hvað þetta var fljótt að líða. Við erum boðin til Jens og Elísubetar á gamlárskvöld að borða og svo er þetta bara á enda......vinnan byrjar aftur og það styttist í prófin ☹ Jæja, bið að heilsa ykkur í bili, og takk fyrir öll jólakortin.
»
17.12.2007 16:10:47 / louisaoglarus
Síðasta vika var ekstra fljót að líða. Mamma var hérna hjá okkur, og alltaf þegar hún kemur þá er eins og klukkunni líður ekstra hratt, hún er ný komin og svo allt í einu farinn stax, skil þetta ekki!!!!!
En á þriðjudaginn síðasta fórum við í brúðakjólaleigu í Aarhus, og það var nú aldeilis upplifun fyrir sig. Ég get nú ekki sagt mikið um þá ferð, því þá á Lárus eftir að vita allt. Það eina sem ég get sagt er að ég mátaði fjóra mismunandi kjóla og það endaði með því, að mamma keypti einn rosalega fallegan kjóla handa mér, TAKK KÆRLEGA FYRIR ÞAÐ MAMMA!!!!! Við vorum samt á tímabili alveg til í að kaupa tvo kjóla, svona einn fyrir kirkjuna og einn til þess að vera í veislunni, hehehehe, erfitt að ákveða sig. En þetta var allavega alveg æðislega gaman og ég hlakka ekkert smá til að vera í þessum fallega kjól þann 9. ágúst 2008, þó svo að það sé auðvitað ótrúlega langt þangað til, hehehehe.
Annars er nú allt gott að frétta, ég er bara í praktíkinni. Á alveg hryllilega erfitt með að vakna á hverjum morgni og sérstaklega eftir helgi þar sem ég hef sofið aðeins lengur, þá finnst mér nú bara ennþá vera nótt, þegar ég á að vakna 6:30 - 7:00. Ekki það að ég fer á fætur þegar vekjaraklukkan hringir, því ég snúsa yfirleitt, alveg þangað til á allra síðustu stundu, þannig að ég hef bara 15 – 20 mín til þess að gera ALLT. Þannig að oft er ég að borða inn á baði á meðan ég er t.d að farða mig, hehehehe, ekta ég!!!!!
En ég hlakka allavega alveg rosalega til þess að fá jólafrí, þó svo að ég verð víst að læra eitthvað, þá verður það æðislegt að fá frí. Við vorum búin að fá að vita frá skólanum að við áttum að vera í frí milli jól og nýárs. En svo allt í einu um daginn, var okkur sagt í praktíkkinni að við áttum að vinna þessa tvo daga á milli jól og nýárs. En ég hélt nú ekki, hehehe, bað hana um að tékka á þessu og þar hafði ég rétt fyrir mér að við eigum að vera í fríi.
Lárus verður líka í fríi í næstu viku, því pabbi hans og Daníel koma til okkar núna á laugardaginn og verða í viku. Það er líka brjálað að gera hjá Lárusi í vinnunni, það er oft sem þau ná ekki að borða hádegismat, úúúffff, ég mundi ekki höndla það.
Jæja, segjum þetta gott, mormor og morfar eru að koma til okkar í mat. Lárus meistarakokkur er búin að gera lagsagne a´la Lárus.......mmmmmmm
»
20.11.2007 16:37:56 / louisaoglarus
Ég fékk að vita í dag að ég náði prófinu sem ég var í fyrir 2 vikum, þannig að það bjargaði aldeilis deginum, ooohhh.....svo mikill léttir að fá svona góðar fréttir, sérstakleg því ég er búin að bíða svo lengi eftir svari.
En annars er ég byrjuð í praktíkinni og það er mjög fínt, það var auðvitað mjög erfitt fyrstu vikuna, því það var svo mikið af nýjum upplýsingum sem við þurftum að meðtaka og fullt af nýju fólki og auðvitað nýr staður til þess að venjast.
Við verðum aðalega með þrjá mismunandi markhópa sem eru:
Sjúklingar sem eru búnir að fara í mjaðmaaðgerðir af mismunandi ástæðum, þar sem við komum inn og sýnum þeim hvernig á að nota mismunandi hjálpartæki, þar sem þau mega ekki beyja sig meira en 90° í mjöðminni.
Við erum einnig með markhóp sem þurfa endurhæfingu eftir brot eða út af öðrum orsökum í höndunum.
Síðasti markhópur er fólk sem er búið að fá heilablæðingu eða blóðtappa og þar getur verið margt mismunadi að, sem þarf að endurhæfa.
Þetta er nú ekki það sem mig langar að vinna við þegar ég er útlærð en það er samt gaman að kynnast þessu og sjá um hvað þetta snýst.
Annars er ég byrjuð á fullu að æfa aftur, nú þegar maður þarf ekki að fara beint heim að læra þegar ég er búin að vinna. Mamma kemur til okkar 8.des og í þeirri viku er ég búin að panta tíma í brúðakjólamátun, þannig að það er eins gott að vera í ágætlega góðu formi fyrir þann tíma, ooohhhh, það verður algjör draumur og hlakka ég mikið til.
Ég er aðeins byrjuð að hlakka til jóla og sérstaklega eftir að ég fór á julefrokost síðustu helgi þar sem við fengum ekta jólamat og svo var auðvitað pakkaleikur, þar sem allt varð brjálað, hehehehehe. Það var haldið niður í bæ eftir það og auðvitað var rosa stuð. Lárus var svo elskulegur að sækja mig kl. 03:30 en svo þarf ég víst að borga greiðan næstu helgi þegar hann fer á julefrokost með vinnunni.
Ég ætla svo bráðum að fara og kaupa jólagjafirnar svo mamma geti tekið eitthvað af þeim með sér heim.
En áður en ég fór á julefrokost á laugardaginn var ég að klippa frá kl. 9-15 og með því að vera búin að klippa nokkra í vikunni er ég búin að safna mér fyrir fari heim til Íslands í janúar þegar ég fer í vetrarfrí. En ég verð líklega allan tíman fyrir norðan og ætlar mamma að bjóða mér þangað, jjjiiibbbííííí, það verður algjört æði. Þannig að aumingja Lárus sem er alltaf skilinn aleinn heima verður líka skilinn eftir heima þá.
Jæja þetta er víst orðið fínt í bili, bið að heilsa ykkur :-)
»
24.10.2007 08:03:37 / louisaoglarus
Jæja það er kannski komin tími til þess að blogga smá, ég er alveg ferrlega löt við þetta þessa dagana. En það er kannksi af því að mér hefur ekkert fundist vera neitt sérstakt að frétta. En jú það er auðvitað frábært að vera kominn með bíl, allt annað líf.......sérstaklega þegar við förum að versla og þegar okkur langar að fara eitthvað, þá er mjög auðvelt að hoppa upp í bíl og keyra af stað. En annars er það að frétta að ég er nýkomin heim frá Írlandi (Cork). Ég fór á iðjuþjálfunarráðstefnu með þremur stelpum úr bekknum mínum. Þessi ferð var mjög skemmtileg og fróðleg, við fórum á miðvikudaginn og eyddum eiginlega öllum deginum í að ferðast, því við millilendum í Dublin og flugum svo áfram til Cork þar sem ráðstefnan var haldinn. Á fimmtudaginn byrjaði svo stuðið, en byrjaði samt bara rólega þar sem við þurftum að byrja á því að skrá okkur og svo var annars bara verið að bjóða okkur velkomin og svona. Fimmtudag, föstudag og laugardag var svo stíft prógram, þar sem bæði útlærðir iðjuþjálfar og nemendur voru með mismunandi fyrilestra. Á kvöldin var svo farið út að borða og á pub.......auðvitað. Við sáum einnig írska dansa og fengum að taka þátt í dönsunum, sem var alveg æðislega gaman ásamt því að hlusta á írska tónlist. Sunnudagsmorgun var svo vaknað snemma til þess að fara heim og það munaði mjög litlu að við höfðum misst af vélinni frá Dublin til Billund, þar sem ein af okkur var með alla miðana og leit vitlaust á miðana (hún hélt að við áttum að fara seinna af stað  Þannig að það endaði með því að við þurftum að hlaupa alla flugstöðina og enga smá vegalengd.........úúúúúúfffff......ekkert smá stressandi. En ráðstefnan var mjög fín, það var auðvitað erfitt að hlusta á mismunandi talaða ensku, því þetta var jú fólk alstaðar frá, og auðvitað fullt af fagorðum sem við skildum ekki. En það var samt mjög gaman að hafa tekið þátt í þessu og hitt fullt af öðrum nemendum frá öðrum löndum og sjá hvað það er mikill munur á náminu milli landa. Einnig hittum við konur sem eru mjög þekktar í þessu fagi, og fróðlegt að hlusta á þær. En núna tekur víst daglegt líf við aftur og ég þarf víst að fara og læra eitthvað, því ekki var nú mikið gert af því í þessari ferð.......... Ég er að fara í próf eftir tæpar 2 vikur, þannig að það er eins gott að fara og gera eitthvað. Eftir það, tekur svo praktíkin við og ég verð mjög líklega á sjúkrahúsinu hérna í Randers í 8 vikur. Það verður mjög fínt að geta loksins unnið með allt þetta sem við erum búin að læra í skólanum. En jæja......hafið það gott og endilega skrifið smá kveðju.........Louisa
»
17.09.2007 15:22:46 / louisaoglarus
JJJJiiiiibbbbííííí, við erum búin að kaupa bíl og það gerðist í dag. Við keyptum okkur nýjan VolksWagen Fox og fáum hann 1. okt. Við vorum svo heppin að það var til einn svona bíll eins og við vildum hafa hann, hérna í DK, þannig að við þurfum bara að bíða í 2 vikur í staðin fyrir, að þurfa að bíða í yfir 4 mánuði ef við mundum fá hann frá verksmiðjunni.
Við ákváðum að kaupa okkur bíl því það er aðalega pirrandi á föstudögum þegar Lárus er búin að vinna kl. 19, þá er hann ekki kominn heim fyrr en kl 20:40, því hann nær ekki strætó í Aarhus fyrr en kl. 19:30. Svo verður þetta líka mikill munur þegar maður þarf að fara að versla í staðinn fyrir að vera að versla annan hvern dag, því maður getur ekki verslað eins mikið eins og ef maður er á bíl. Svo auðvitað um helgar, þá er hægt að keyra eitthvað um og heimsækja fólk.
Ooohhh.....ég er svo spennt og hlakka ekkert smá til að fá nýja bílinn.
En annars er það að frétta, að við fáum gesti um jólin. Jú, jú, tengdapabbi og Daniel ætla að koma 22. des og vera þangað til 29. des, þannig að þeir ætla að halda jólin með okkur, það verður aldeilis kósý hjá okkur og gaman að geta verið heima um jólin.
En fyrst ætlar hún Valdís að koma og heimsækja okkur, hún ætlar að koma í næstu viku og stoppa stutt, ætlar bara að gista í eina nótt. En bara að hún komi finnst mér alveg frábært og við ætlum að hafa það alveg ótrúlega kósý á meðan hún verður hérna, borða góðan mat, spjalla, hlægja og fleira.......
Það gengur annars vel í skólanum......alveg brjálað að gera og ég er engan veginn að fatta að ég sé búin að vera í skólanum í þrjár vikur, þetta er ekkert smá fljótt að líða, mér finnst ég nýbyrjuð á þessari önn. En það er bara gott mál.
Jæja, ég ætla að hætta í bili..............ses.......knus......Louisa Sif
»
27.08.2007 19:25:51 / louisaoglarus
Já, þá er maður orðin 25 ára og það er auðvitað bara allt annað, vaknaði upp á afmælisdaginn og fann bara hvað það var allt öðruvísi að vera 25 ára en að vera bara 24 ára........hehehehehehe En annars er það að frétta af mér að ég byrjaði í skólanum í dag...... og úff ..... það tók nú svolítið á, eftir svona langt sumarfrí. En það var gott að byrja aftur, ég var orðin svolítið þreytt á þessu frí. En sumarfríið er samt búið að vera alveg ótrúlega fljótt að líða og auðvitað gott að vera búin að slappa vel af svo maður er tilbúin til þess að takast á við ný verkefni. Það var samt skrítið að koma í skólann aftur, þar sem ég er ekki lengur í sama bekk og ég var á hinum tveimur önnunum, það er búið að deila okkur í tvo bekki þar sem helmingur af mínum bekk er með helminginum af hinum bekknum og svo byrjuðu fjórar nýjar, þar fyrir utan. En annnars held ég að þetta verði skemmtileg önn og sérstaklega þegar við förum í praktík sem er í nóv-jan, þá getur maður verið í kringum fullt af mismunandi fólki og fær tækifæri til þess að vinna með því. En jæja, ætla að hætta í bili, vildi bara skrifa nokkur orð til ykkar þarna úti, hehehehe
»
23.08.2007 06:22:47 / louisaoglarus
......hún á afmmmæælllii í dag, hún á afmmmælllii hún Louisa, hún á afmmmælllii í dag..... Hún er 25 ára í dag.....hún er 25 ára í dag.........hún er 25 ára hún Louisa, hún er 25 ára í dag.........Jjjiiibbbbbíííííííííí
»
17.08.2007 10:38:25 / louisaoglarus
Ég er ekki að vakna fyrr en um kl.11:30 flesta daga í sumarfríinu mínu, en maður ætti kannski bara að njóta þess á meðan maður getur!!!!!
En í gærkvöldi komum við svo sem líka frekar seint heim, það er nefnilega búið að vera Randersuge hérna í vikunni og þar eru alskonar uppákomur. Í gær var svo tónleikar með Kim Larsen sem við ætluðum auðvitað ekki að missa af, enda rosalega góðir tónleikar þar á ferð. Ég er alveg ennþá með suð í eyrunum síðan í gærkvöldi þar sem við stóðum alveg fremst og ekki langt frá hátölurunum.
Annars er lítið búið að gerast hérna í DK, það er ekki búið að vera neitt sérstakt veður hérna, enda er ég ekki alveg sátt við þetta. Ég er í sumarfríi og þá á auðvitað að vera gott veður, en nei.....en svo lengi sem það rignir ekki þá er þetta í lagi. Það verður þá bara pottþétt gott veður næsta sumar.
Ég er mest búin að vera í einhverju letikasti hérna heima í vikunni, ég nenni ekki að gera neitt og nenni ekki einu sinna að gera það sem ég þarf að gera, sem er nú reyndar bara einhverjir smáhlutir. Það er svo sem ágætt að slappa bara af þessa viku því ég er nú líka búin að vera á fullu allt sumarfríið. Var auðvitað að vinna í mánuð, svo voru gestir hjá okkur í 2 vikur, svo kemur ein vika núna í fríi og svo kemur mamma á mánudaginn og þá gerum við eitthvað skemmtilegt. Eftir það er svo, þótt ótrúlegt sé, sumarfríið búið og ég að byrja í skólanum.
Við erum byrjuð að fylgja Danskakúrnum alveg stíft núna aftur, það var sukkað svo rosalega í sumarfríinu að okkur leið alveg illa. Brauð með súkkulaði á hverjum degi...mmmmm....það er svo gott. En ef við ætlum að vera ennþá fallegri en við erum í dag, á brúðkaupsdaginn og áður en við kaupum okkur dressið okkar, þá verðum við víst að taka okkur aðeins á. En besta við þetta er líka að manni líður svo miklu betur!!
Jæja, ég hef víst ekkert krassandi slúður fyrir ykkur, þannig að þangað til næst, hafið það gott :-)
En eitt en, kann einhver að setja inn myndir inn á svona bloggsíðu, mér tókst að setja inn mynd inn í myndaalbúmið
en kann ekki að setja hérna á forsíðuna þar sem dagbókin er!!!!! Hjálp væri vel þegin
»
06.08.2007 18:05:50 / louisaoglarus
Jæja þá er rúmlega vika búin af sumarfríinu og það er ekkert smá
hvað við erum búin að vera aktiv síðan við lentum í DK.
Svavar, Heiða og börnin komu sem sagt með okkur heim og verða hérna
hjá okkur í 13 daga og þá verður auðvitað að bralla eitthvað á
meðan þau eru hérna.
Við vöknuðum kl. 3:00 aðfaranótt sunnudags og fórum í loftið kl.
7:00. Þetta var langt ferðalag, því þegar við lentum í Köben
þurftum við auðvitað að finna fína sjö manna bílaleigubílinn og
keyrðum svo á Jótlandið góða og vorum ekki kominn heim fyrr en um
16:30. En mikið rosalega var gott að koma heim eftir mánuð heima á
Íslandi.....gott að komast í sitt eigið rúm, fataskápinn og að geta
loksins verslað mat á almennilegu verði.
Á Mánudeginum var strax farið til Þýskalands.....nema hvað að
ferðin byrjaði ekki vel, þegar við vorum búin að keyra í ca. 40
mín. ældi Mikael yfir sig allan og það voru enginn aukaföt. Þannig
að þegar það var búið að þrífa bílinn og afklæða Mikael var farið í
H&M til þess að versla föt á barnið svo við gátum haldið áfram
með að keyra til Þýskalands, þannig að það tók sinn tíma. Það var
mikið verslað og við rétt gátum sett allan bjórinn og coke ziro
kassana í skottið ásamt fullt af öðru dóti sem var verslað.
Við eyddum öllum þriðjudeginum í DJURS-sommerland sem er
skemmtigarður hérna ekki svo langt frá sem við búum. Það var
auðvitað alveg rosalega skemmtilegt og skemmtum við okkur ekkert
minna en börnin. En það er nú líka skemmtilegra að taka börn með
sér, ekki eins og í fyrra þegar ég og Lárus fórum ein, þó svo að
það var líka gaman, þá var það bara öðruvísi.
Á miðvikudaginn fórum við hérna niður í bæ og þar var aldeilis
verslað. Við Heiða fórum í H&M og versluðum þvílíkan búnka af
fötum á börnin fyrir veturinn og þvílíkur munur að versla hérna og
heima, það er mun ódýrara og svo fá þau auðvitað fullt í
tax-free.
Á fimmtudeginum fengu strákarnir að hafa bílinn og eyddu þeir
deginum í að keyra til Tomma vin okkar á vesturströndina og voru
aðeins hjá honum og skoða bóndabýlið sem hann er að vinna hjá, áður
en þeir héldu heim aftur.
Á meðan smurðum við okkur nesti og fórum í skóginn í göngutúr. Ég
er greinilega svona girnilega því ég fékk 11 muggstik og ekkert smá
hvað þetta klæjar. Ég man ekki eftir því að hafa fengið svona, en
ég er bara búin að vera með eitthvað krem sem ég reyni að vera
dugleg að bera á mig, þá klæjar þetta ekki eins mikið.
Föstudagurinn var sko aldeilis BARA stelpudagur og verslunardagur.
Ég og Heiða skutluðum strákunum og börnunum í sund hérna í Randers
og fórum svo sjálfar til Aarhus. Við vorum komin þangað um kl. 11
og fórum ekki heim fyrr en um kl. 17.
Og það var ekkert smá verslað, það er langt síðan ég hef eytt svona
miklu í föt á sjálfan mig, en ekki var það leiðinlegt. Ég keypti
mér fullt af fötum og þar á meðal þennan líka fína röndótta kjól og
belti sem ég er með fyrir neðan brjóstin, svaka gella,
hehehehehe.
Strákarnir og börnin fóru einnig í hoppuland á meðan við vorum að
versla, en Lárus var víst ekki alveg sáttur, þar sem hoppulandið
var aðeins ætlað börnum yngri en 12 ára og þurfti hann því að láta
sér nægja að horfa á börnin hoppa.
Á Laugadeginum var þvílíkt heitt hérna, og við fórum, eins og fullt
af öðru fólki í Legoland. Það er að verða ansi mörg ár síðan ég hef
farið í Legoland síðst, þannig að það var mikið búið að breytast og
bætast við. En alltaf gaman að fara í Legoland og sérstaklegga
fyrir börnin. Það voru ekki nógu brjáluð tæki þarna fyrir okkur,
þannig að það var engin hasar svo sem.
Í gær var rosalega heitt eins og það er búið að vera í dag, þannig
að við skelltum okkur á ströndina í Fjellerup og lágum þar eins og
skötur. Ég varð auðvitað lang brúnust eftir daginn eins og
venjulega........hehehehe eða þannig, brann pínu á bakinu en það
verður nú fljótt að hverfa.
Um kvöldið buðu Heiða og Svavar í mat á mexíkanska veitingastaðinn
hérna niður í bæ........og úúúúúfffff hvað við vorum södd eftir
það.
Jæja þetta er alveg að vera búið, en fyrst ég er búin að skifa
svona mikið get ég víst alveg sagt ykkur hvað við gerðum í dag.
Við vorum boðin í morgunkaffi hjá mormor og morfar í morgun. Eftir
það keyrðum við til Ebeltoft og fórum í dýragarðinn þar. Það var
alveg ágætt en örugglega síst af þessu öllu. Það var svo heitt að
dýrin voru eitthvað rosalega löt og nenntu ekki mikið að sína
sig.
Jæja, þetta er víst að vera gott í bili. Lárus byrjar að vinna
aftur í fyrramálið, þannig að við verðum örugglega bara róleg í
þessari viku, enda búin að vera alveg á fullu síðustu daga.
En ég verð að segja ykkur að fyrir tveimur dögum var eitt ár síðan
við fluttum hingað út til DK, ótrúlegt hvað þetta er fljótt að
líða. Í dag á svo Jens bróðir minn afmæli og til hamingju með það
gamli, bara 2 ár í að þú verður þrítugur, hehehe. í daga eru einnig
2 ár síðan mamma og Mike giftu sig, en það var alveg æðislegur
dagur!!!!!!
»
21.07.2007 21:36:04 / louisaoglarus
já nú er ég búin að vera hérna í þrjár vikur í dag, og Lárus
bráðum búin að vera hérna í viku. Það er búið að vera brjálað að
gera hjá okkur að heimsækja allt þetta fólk sem maður er ekki búin
að hitta lengi. Þegar ég er búin að vinna, kemur Lárus að sækja mig
og svo eftir kvöldmat erum við yfirleitt búin að skipurleggja að
heimsækja einhvern, enda ákváðum við að heimsækja ekki neinn í dag.
Við vöknum snemma, kíktum aðeins í 66 norður þar sem ég keypti mér
flíspeysu, fórum aðeins að versla og fórum svo heim að gera nesti
sem við svo tókum með í Heiðmörk í göngutúr. Það var algjört æði að
labba þarna og setjast svo niður í náttúrunni og borða
nesti.
Við erum annars búin að ákveða að gifta okkur næsta sumar, 9. ágúst og erum aðeins búin að vera að
plana það. Skoða kirkjuna, tala við prestinn, reyna að fá sal og
ýmislegt sem tengist brúðkaupinu. Það er lang best að gera það á
meðan maður er á landinu, því við komum örugglega ekki heima fyrr
en næsta sumar. Ohhhh.....mig hlakkar svo til, þetta verður
alveg pottþétt frábær dagur.
En mér finnst alveg ótrúlegt hvað þessi tími hérna heima er búin að vera fljótur að líða, tíminn flýgur
áfram án þess að maður tekur eftir því. En það er búið að vera fínt
að koma heim og vinna í einn mánuð, það verður samt gott að komast
aftur heim (DK) og fá sumarfrí þar.
Jæja vildi bara aðeins láta heyra frá mér, hafið það gott og gaman að sjá ykkur öll hérna heima.
»
06.07.2007 23:44:44 / louisaoglarus
Jæja, þá er ég komin heim til Íslands og það er meira að segja vika
á morgun, síðan ég kom til landsins. Það er búið að vera svo
brjálað að gera hjá mér síðan ég kom að það er eiginlega ekkert
fyndið. Greyjið Lárus, ég er alltaf á einhverjum hlaupum þegar ég
er að tala við hann á skypinu.
En nú er ég orðin vinnandi manneskja og það er bara fínt að gera
eitthvað annað en að lesa skólabækur. Það er búið að vera alveg
brjálað að gera á stofunni síðan ég byrjaði. Ég er rakaramegin og
því búin að vera að klippa herra frá kl. 9:00 - 17:00 alla daga.
Það er varla að ég hafi tíma til þess að borða hádegismat, enda
hefur það yfirleitt dregist þangað til kl. 13:30 en þá er ég líka
að deyja úr hungri og er engan veginn fær um að klippa neinn. Svo
hakkar maður matinn í sig, því að maður veit að það er fólk að bíða
i sófanum.
Svo þegar ég er búinn að vinna er ég yfirleitt búinn að mæla mér
mót með einhverjum. Ég er t.d að fara að skoða þriðja nýfædda
barnið á morgunn. Í gær fór ég til Ingu frænku hans Lárusar og sá
litlu skvísuna hennar sem kom í heiminn 12. júní, í kvöld fór ég og
sá nýja fjölskyldumeðliminn okkar, litla prinsinn hjá Einari og
Hafdísi.........og Lárus....hann er alveg eins og Hafdís, þú sérð
það þegar þú kemur. Á morgun fer ég svo til Möggu, en hún átti
strákinn sinn deginum á undan Hafdisi eða 3. júlí.
Uuuussssss........þetta er alveg stórhættulegt að sjá öll þess
litlu sætu börn, mig langar helst til þess að fá eitt svona, helst
í gær, hehehehehe.
En svo er ég auðvitað búin að hitta Ernu og litlu stelpuna hennar,
sem er búin að stækka alveg helling síðan ég sá hana síðast, ég
hitti Klöru í gær og annars búin að hitta fullt af öðru fólki og á
eftir að hitta fullt af fólki.
Jæja, en ég er að hugsa um að segja þetta gott í bili, þar sem
klukkan er orðin ansi margt og ég er að sofna yfir skjánum, eftir
erfiðan dag.
Hlakka til að sjá þig Lárus minn, nú eru bara 9 dagar þangað til þú
kemur :-)
»
19.06.2007 15:25:35 / louisaoglarus
Jæja, þá eru prófin að fara og byrja. Ég fer sem sagt í fyrst
prófið núna á föstudaginn, og því er búið að vera alveg brjálað að
gera hjá mér síðustu daga að læra.
Lisbeth sem er með mér í skóla og sem býr hérna í Randers var að
fara frá mér, við erum búin að vera að læra saman í fjóra
klukkutíma í dag og þar á undan sat ég ein í þrjá og hálfan. Mér
finnst miklu betra að diskútera með öðrum heldur en þegar ég sit
ein við þetta, því þá er ég alltaf við það að sofna, ekki gott.
En annars hef ég á tilfinningunni að þetta eigi eftir að ganga
ágætlega, mér finnst ég vera búin að vera hörku dugleg að læra,
þannig að það ætti allavega mikið að ganga á ef ég fell. En þetta
er próf sem maður fær ekki einkunn, bara staðið eða ekki
staðið.
Næsta er hins vegar munnlegt og þar fær maður einkunn, en ég er
ekki komin svo langt að hugsa um það próf, ekki fyrr en hitt er
búið.
Það er annars lítið að frétta héðan, sumarið er komið og alveg
yndislegt að hafa svona gott veður eins og það er búið að vera inn
á milli þegar það rignir ekki, en það er búið að rigna svolítið
síðustu daga. Það er búið að vera svo gott veður að jarðaberin eru
tilbúin fyrir tíman, svo við ætlum að skella okkur í
jarðaberjatínslu næsta sunnudag. Oohhhh.......ég hlakka svo til, er
ekki búin að fara og tína jarðaber í mörg ár og það er eitt af því
best sem ég veit. Við komum svo seint hingað í fyrra að við náðum
ekki að fara og tína nein jarðaber.
En það styttist í að ég kem heim á klakann og það verður líka fínt.
Þó svo að ég sé að fara og vinna eiginlega strax og ég kem, þá er
það bara rosalega fínt frí fyrir mig, þar sem ég þarf ekki að nota
heilann góða, svona mikið eins og þegar maður er að lesa fyrir
próf, hehehe.
Þannig að það verður bara fínt að komast í vinnu og fara að gera
eitthvað annað.
Jæja ég bið að heilsa í bili og endilega kommentið!!!!!!
»
06.06.2007 21:07:58 / louisaoglarus
Jæja, ég var spurð hvort ég færi ekki bráðum að blogga og
sannleikurinn er sá að ég er búin að hugsa um það á hverjum degi
núna í langan tíma, en einhvernveginn gerist ekkert, hehehe
Það er nú margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast, við vorum
t.d með gesti um daginn, en þau fóru heim á föstudaginn síðasta.
Mamma, Mike og Andrea komu til okkar. Mamma kom til þess að taka
próf í fjarnáminu sínu og fékk 8, flott hjá henni og svo var haldin
fermingarveisla fyrir Andreu. Veislan var rosalega fín og óhætt að
segja að við fengum meira en nóg að borða. Við byrjuðum á því að fá
lax í forrétt, eftir það var kalkúnn í aðalrétt, ís í eftirrétt og
ísterta þar á eftir. Þegar maður var orðin afvelta af þessu öllu
var kaffi og nammi í boði og svo áður en við fórum heim fengum við
samlokur. Þetta var mjög vel heppnuð veisla með góðum mat og
skemmtilegum söngvum sem voru gerðir fyrir Andreu. Það voru 24 í
veislunni og Andrea fékk pening frá öllum, þannig að hún er
aldeilis rík núna. Ég sagði við hana að hún gæti bara látið mig fá
peninginn, en hún var nú ekki alveg til í það, skil það nú ekki
!!!!!!!!
Þessa dagana hugsa ég ekki um annað en prófin, en hlakka mikið til
þess þegar ég er búin í þeim. Ég fer í fysiologiprófið þann 22.
júní kl. 9-12 og í munnlegt ergoterapipróf (iðjuþjálfunarpróf) þann
28. júní kl 9:40 – 11:30 ( með undirbúningi). Og það verður algjört
æði þegar þetta er búið.
Annars er lítið að frétta, Lárus er að fara til Köben um helgina
svo ég get nýtt tíman til þess að læra. Hann ætlar að klippa vini
okkar þar og kíkja eitthvað á djammið.
En annars langar mig til þess að nýta tækifærið og auglýsa íbúðina
okkar sem er laus til leigu 1.ágúst, ef þið þekkið einhvern sem
vantar 80 fm íbúð í Mosó, þá endilega hafið samband.
En hafið það sem allra best !!!!!!
»
18.05.2007 17:35:25 / louisaoglarus
Jæja, það styttist óðum í sumarið. Ég fer heim 30. júní og byrja að
vinna hjá Dóra á hárgreiðslustofunni, mánudaginn 2. júlí. Ég hef
ekkert getað sagt þessar fínu fréttir, því það var leyndó á
stofunni að ég mundi koma og aðstoða þau í júlímánuð. En nú eru þau
búin að fá að vita að ég sé að koma þannig að það er um að gera að
láta ykkur hin vita af því. Það var fyrst planið hjá mér að ég og
Lárus mundum fara saman heim og vera þar í fríi í tvær vikur. Eftir
það mundi hann svo fara heim og ég mundi verða eftir og vinna í
mánuð, en hann Lárus minn var ekki alveg að gúddera það, hann var
ekki alveg til í að vera einn heima í mánuð, enda skil ég hann svo
sem alveg. Við ákváðum því að ég vinn júlímánuð, en hann kemur 16.
júlí og verður með mér síðustu tvær vikurnar, en auðvitað í fríi.
Lárus lætur bara mig vinna á meðan hann er í fríi, góður, hehehe.
Nei það verður fínt að vinna svolítið og hugsa um eitthvað annað en
skólabækurnar og hann þarf auðvitað að fá frí.
Svo erum við svo heppinn að þegar við förum heim, koma Svavar,
Heiða og börnin með okkur. Við ætlum að hafa það alveg rosalega
gott saman hérna í DK og fara í Legoland og fleira.
En ég þarf víst að klára þessi blessuðu próf áður en mér fer að
hlakka til sumarsins.
Síðast þegar és skrifaði var ég að segja að ég væri alveg hevý
dugleg að hlaupa.....en síðustu þrjú skipti hefur Lárus komið með
mér og OMG, það er alveg greinilegt að ég hef verið allt of góð við
sjálfan mig, hann hefur alveg pískað mig áfram síðustu skipti og
þar af leiðindum er auðvitað miklu erfiðara að hlaupa en það hefur
verið áður. En það er bara gott að hann haldi mér við efnið og það
er miklu skemmtilegra að hafa hann með, vona að hann haldi því
áfram.
Jæja, Lárus fer alveg að koma heim, þannig að ég þarf að fara og
elda fyrir okkur. Bið að heilsa ykkur í bili.
»
08.05.2007 15:22:27 / louisaoglarus
Jæja, þrjár vikur liðnar og ekkert búin að skrifa, það endar með
því að fólk nennir ekki að kíkja á síðuna, hehehe
En við vorum með gesti um helgina. Þau Bjarni og Edda komu til
okkar frá Köben. Þau komu á fimmtudagskvöldið og við fengum lánaðan
bílinn til þess að sækja þau. Á föstudaginn var frídagur hérna í DK
og ekki spyrja afhverju, því ég veit það ekki, bara fegin að fá
frídag. Við fórum því á ströndina því það var svo gott veður og
keyrðum svo aðeins um og sýndum þeim Jótlandið góða, því Edda hefur
ekki komið hingað áður og ég held að Bjarni hefur bara komið á
Jótlandið einu sinni áður, en það var þegar hann kom síðast til
okkar. Á laugardeginum þurfti Lárus að vinna til kl.16 þannig að
við skelltum okkur til Aarhus og skoðuðum bæinn aðeins áður en við
náðum í hann. Eftir það var farið heim að grilla í frábæru veðri og
svo fórum við í bæinn um kvöldið. Við vorum þreytt á sunnudeginum
og slöppuðum því bara af áður en þau fóru svo með lestinni heim um
kl. 15. Það var æðislega gaman að fá þau í heimsókn og hlakka til
þegar þau koma næst.
En þetta var víst síðasta helgin þar sem ég get sleppt því að læra
alveg. Ég fer í tvö próf í endan júní, og þó svo að það sé langt í
það, þarf ég að undirbúa mig vel fyrir þau bæði. Ég fer í
lífeðlisprófið fyrst og þar erum við búin að fá 176 spurningar sem
við eigum að svar (er ca. hálfnuð með það) og svo eigum við að
kunna þessar spurningar vel fyrir prófið. En á prófinu koma 10
svipaðar spurningar og ein löng ritgerð sem við eigum að svara.
Þannig að ég er búin að reikna það út að ef ég læri ca. fimm
spurningar á dag, ætti ég að ná þessu.
Hitt prófið sem ég tek er í iðjuþjálfunarfaginu og það er
MUNNLEGT.....oooohhhh.... ég hata munnleg próf, og hvað þá á
dönsku. En reyndar er ég heppin með verkefnið sem við eigum að
gera, það er ekkert rosalega erfitt og eiginlega auðveldara að gera
það munnlegt og svo treysti ég því bara að ég get kjaftað mig
einhvernveginn út úr þessu. En hinsvegar eigum við svo að læra 40
spurningar utan að (ein spurning er ca. einblaðsíða) en svo eigum
við bara að draga eina og tala um hana í ca. 10 mín. Mér finnst það
alveg hræðilega illa gert af kennurunum. En ég er líka búin að
reikna út að ég þarf að læra eina spurningu á dag í því fagi og þá
ætti ég að ná því.
Já, það er gott að vera skipulagður, en ég vona bara að það skili
mér rétta leið, mér finnst þetta hevý erfitt og vona að þetta gangi
sem best.
Til þess að leiða hugann að einhverju öðru fer ég út að hlaupa
þrisvar í viku og er orðin hevý dugleg. Þetta er næstum því 6 km,
en ég labba fyrst 1 km, hleyp svo 4 km og labba svo aðeins í
restina. Ég sem hef aldrei getað hlaupið almennilega, en ég finn að
ég verð alltaf betri og betri. Ég man þegar maður var látin hlaupa
í kringum tjörnina þegar ég var í Tjarnaskóla og ég hélt að ég væri
bókstlaflega að deyja þegar ég loksins var komin hringinn,
hehehe.
En jæja, best að fara að læra þessar spurningar sem ég var að segja
ykkur frá. Hafið það sem allra best og þið sem eruð í prófum eða
lokaverkefnum, gangi ykkur vel og hugsið til mín þegar ég verð Í
ENDAN JÚNÍ í prófum. Ekki gaman, en ég ætla bara að búa á svölunum
og verða súkkulaði brún, eins og ég er vöna að verða þegar ég er
búin að vera í sólbaði, hehehe
»
Síður: 1 2 3 4
|
|